top of page

Friðhelgisstefna

Til þess að Iceland2C geti veitt þér þá þjónustu sem boðið er upp á þarf fyrirtækið að vinna með ákveðnar persónuupplýsingar sem við öflum beint frá þér.

Tengiliðaupplýsingar: Nafn, heimilisfang, afhendingarstað, netfang, símanúmer og kennitala kaupanda.

Greiðsluupplýsingar: Kortanúmer eru aldrei geymd hjá okkur, heldur eingöngu í öruggu umhverfi hjá greiðsluþjónustunni okkar, Rapyd.

Upplýsingar um vörukaup: Pantanir þínar og viðskiptasögu við okkur. Við notum upplýsingarnar eingöngu í þeim tilgangi að afgreiða pantanir og koma vörunum til þín og til að geta staðið við lagaskyldur okkar.

Við geymum upplýsingarnar þínar aðeins eins lengi og við þurfum. Upplýsingar sem tengjast bókhaldi erum við skyldug til að geyma í 7 ár samkvæmt bókhaldslögum, en ekki lengur en 10 ár. Upplýsingar sem við notum til markaðssetningar geymum við þar til þú biður okkur um að hætta að senda þér póst eða afturkallar samþykki þitt.

Til að láta hlutina ganga upp þurfum við stundum að deila upplýsingum með traustum samstarfsaðilum:

·         Rapyd: Til að ganga frá og vinna úr greiðslum.

·         Flutningsaðilum: Svo varan skili sér heim að dyrum til þín.

·         Opinberum aðilum: Aðeins ef lög krefjast þess beinlínis. Við viljum taka það skýrt fram að við seljum aldrei persónuupplýsingarnar þínar til þriðja aðila.

Okkur er annt um öryggi gagna þinna. Við notum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar lausnir til að vernda þau gegn óleyfilegum aðgangi, breytingum eða eyðingu. Greiðslukortaupplýsingar fara í gegnum Rapyd sem uppfyllir ströngustu öryggisstaðla (PCI DSS).

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú ýmis réttindi þegar kemur að þínum gögnum. Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum þínum hjá okkur, láta okkur leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta okkur eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær.

Við gætum þurft að uppfæra þessa stefnu af og til. Nýjasta útgáfan tekur gildi um leið og hún er birt á vefsíðunni okkar.

bottom of page