top of page

Viðskiptaskilmálar

Eftirfarandi skilmálar gilda um öll kaup og viðskipti frá Gobble.is. Með því að versla hjá okkur samþykkir þú þessa skilmála. Iceland2C ehf. er með umboð fyrir Gobble vörur á Íslandi. Gobble er í eigu Captain Sigs Baits AS í Noregi.

Iceland2C er með kennitöluna 530821-0800. Heimilisfang þess er Bakkastaðir 71, 112, RVK, sími: +354-8888040. Netfang: iceland2C@iceland2c.is

Þessi útgáfa skjalsins gildir um kaup á vefverslun okkar sem eiga sér stað eftir 1. mars 2026.

 

​VÖRUÚRVAL OG UPPLÝSINGAR

Við seljum Gobble Sticky. Við leggjum okkur fram við að hafa vörulýsingar og myndir á vefnum eins nákvæmar og hægt er hverju sinni.

VERÐ OG GREIÐSLUR

Öll verð hjá okkur eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (VSK), nema annað sé tekið fram. Þú greiðir fyrir pöntunina þegar hún er lögð inn. Við tökum við gildum greiðslumiðli sem við tökum við á hverjum tíma, t.d. Visa og Mastercard, í gegnum örugga greiðslugátt frá Rapyd.

AFHENDING OG SENDINGAR

Við stefnum að því að afhenda pöntunina þína innan fjögurra virkra daga frá því að hún er staðfest. Stundum geta komið upp óviðráðanlegar tafir, en við gerum okkar besta til að koma vörunni til þín fljótt og örugglega. Vörum er keyrt út á höfuðborgarsvæðinu án kostnaðar fyrir kaupanda. Vara er afhent á það heimilisfang sem gefið er upp við pöntun vörunnar.

Sendingarkostnaður utan höfuðborgarsvæðisins er kr. 1.160 með vsk.

Ef þú óskar eftir að við sendum þér vöru sem þú kaupir hjá okkur þá kaupum við ekki tryggingar vegna flutnings vörunnar til þín. Sent er á þann afgreiðslustað Íslandspósts eða póstbox sem er næst því heimilisfangi sem þú gefur okkur upp.

Okkur er ekki skylt að afhenda eða senda þér vöru fyrr en skuldfærsla fyrir kaupunum hefur tekist á þitt uppgefið greiðslukort/greiðslumiðil.

Ekki er tekið við pöntunum utan Íslands.

SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLUR

Þú hefur 14 daga rétt til að skila vöru eftir að kaup hafa farið fram.

Skilyrði fyrir endurgreiðslu:

  • Varan skal vera ónotuð, í upprunalegum og heilum umbúðum og greiðslukvittun fylgi með.

  • Þú greiðir sjálf/ur sendingarkostnað vegna skila, nema að varan hafi verið gölluð.

  • Við endurgreiðum þér inn á sama greiðslukort/greiðslumiðil og þú notaðir við kaupin í síðasta lagi 14 dögum eftir að varan berst okkur aftur.

 

Ef þú færð ranga eða gallaða vöru, sendu okkur póst þess efnis á þetta netfang: iceland2C@iceland2c.is

Endursendingar á vörum þurfa að berast á þetta heimilisfang: Iceland2C, Bakkastaðir 71, 112 Reykjavík.

​​

PERSÓNUVERND

Okkur er annt um upplýsingarnar þínar. Meðhöndlun persónuupplýsinga fer fram í samræmi við persónuverndarstefnuna okkar, sem þú getur lesið hér á vefnum.

LÖG OG ÁGREININGSMÁL

Um þessa viðskiptaskilmála gilda íslensk lög. Ef það kemur upp ósætti viljum við reyna að leysa það með þér í sameiningu sem fyrst. Ef það reynist ómögulegt, verður málið lagt fyrir héraðsdóm Reykjavíkur.

 

HAFA SAMBAND OG KVARTANIR

Ef þú hefur spurningar eða vilt koma á framfæri kvörtun, geturðu  sent okkur línu á: iceland2C@iceland2c, eða hringt í síma: 888-8040.

bottom of page